laugardagur, júlí 25, 2009

Á botni Kyrrahafsins

Jæja núna er önnin senn á enda. Síðustu venjulegu námskeiðin kláruðust núna í vikunni, en það er reyndar eitthvað hraðnámskeið í næstu viku og síðan einhver gestafyrirlesari sem kemur hingað í þarnæstu viku svo þetta er kannski ekki alveg búið. Að því loknu má svo segja að sumarfríið sé loksins hafið, en það er reyndar heilmikið á dagskránni hjá mér þá svo ég veit ekki hvað það verður mikið úr fríinu. Fræði ykkur betur um það síðar.
Á mánudaginn síðasta var lögbundinn frídagur hér í Japan; sjávardagurinn. Ég gerði nú ekki mikið þá, enda stór hluti Japana á faraldsfæti og pakkað af túristum hvert sem farið er. Í staðinn nýttum við rannsóknarnemarnir þrír tækifærið á miðvikudaginn þegar við vorum öll laus og skruppum til Ishimaki sem er næst stærsta borgin hér í Miyagi Prefecture. Þar heimsóttum við Sant Juan Bautista Museum sem er tileinkað samnefndri japanskri galíon frá því snemma á 17. öld sem var smíðuð af tilskipan Date Masamune, stofnara Sendai borgar.
Safnið kom bara verulega á óvart og umhverfið líka, en safnið er staðsett í útjaðri Ishimaki í fiskiplássi sem minnti mig óneitanlega á Ísland.

Ísland eða Japan?

Sant Juan Bautista

Síðan skemmdi ekki fyrir að það gafst tækifæri á að klífa mastrið á skipinu, og þó að manni leyfðist reyndar bara að fara tæplega hálfa leið upp þá fékk maður svona sjóræningjatilfinningu alveg beint í æð við þetta.

Yo ho ho and a bottle of rum

Eitt gerðist reyndar sem skemmdi aðeins fyrir ferðinni. Þegar ég var búinn að klifra upp og aftur niður og ætlaði að sveifla mér aftur inn á þilfarið þá skaust nýji fíni gemsinn minn sem ég var ekki búinn að eiga í 2 mánuði úr buxnavasanum mínum og, alveg eins og í einhverri grínmynd, plops beint í sjóinn. Hann liggur þar enn núna, á botni Kyrrahafsins, syndandi með fiskunum.

föstudagur, júlí 17, 2009

Kosningabarátta

Um næstu helgi (held ég) eru borgarstjórnarkosningar hérna í Sendai.
Það væri nú ekki í frásögur færandi nema fyrir það að á leið minni í skólann í morgun þá rakst ég á einn frambjóðandann, Watanabe Hiroshi, þar sem hann stóð á fjölförnu götuhorni, vinkandi til bíla og bjóðandi gangandi og hjólandi góðan daginn. Ég fékk meira að segja "good morning" á fínustu ensku frá honum!

Slagorðið hans er eitthvað á þá leið að hann er búinn að vera óslitið í 22 ár í borgarstjórn og að hann hreyfi sig í samræmi við íbúa Sendai.

Væri ekki gaman ef að íslenskir pólitíkusar myndu taka upp á þessu. Til dæmis ef Davið Oddson fer aftur í pólitíkina þá gæti hann staðið á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar á atkvæðaveiðum. Auðvitað þyrfti hann að vera viðbúinn að skutla sér frá ef einhver framtaksfullur bílstjóri myndi reyna að keyra hann niður...

laugardagur, júlí 11, 2009

Yakiniku

Í gær var farið út að borða yakiniku. Enska þýðingin á því er almennt 'Korean barbecue' en það byggir á því að maður fær þunnar kjötflísar, yfirleitt nautakjöt, sem maður síðan grillar sjálfur við borðið.




Kjötið rann ljúflega niður.